Lagt fram bréf hafnarstjóra dags. 14. nóvember 2014 ásamt erindi Hamla ehf. dags. 3. nóvember 2014 vegna bókunar stjórnar Faxaflóahafna sf. á fundi sínum 14. nóvember að fela formanni og hafnarstjóra að ræða við fulltrúa skipulagsráðs Reykjavíkur og skrifstofu eigna og atvinnuþróunar um hvernig standa skuli að deiliskipulagningu svonefnds Tollvörugeymslu- og Kassagerðarreits. Einnig er lögð fram samantekt skipulagsfulltrúa, um Köllunarklett M18/ Þróunarsvæði Þ-47, um núverandi stöðu og skipulagslegum upplýsingum um svæðið dags. 10. september 2014.