Lögð fram umsókn Sýrfells ehf. dags. 4. maí 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 6 við Blesugróf. Í breytingunni felst að fella niður kvöð um 15 gráðu þakhalla á fyrirhugaðri byggingu, samkvæmt uppdrætti Skipulags-, arkitekta- og verfræðistofunnar ehf. dags. 15. desember 2014 síðast br. 4. maí 2015.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bleikargróf 13 og 15 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.