Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. september 2018 var lögð fram fyrirspurn
Noland arkitekta ehf.
dags. 6. ágúst 2018 þar sem óskað er eftir að byggja íbúðarhús, hæð, kjallari og ris, á baklóð að Hverfisgötu 106. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2018.