Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Noland Arkitekta ehf.
, mótt. 14. febrúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.174.1 vegna lóðarinnar nr. 106 við Hverfisgötu. Í breytingunni felst hækkun á mæni, settir eru skilmálar um kvisti og svalir auk þess sem nýtingarhlutfall er hækkað, samkvæmt uppdr.
Noland Arkitekta ehf.
, dags. 14. febrúar 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 6. apríl til og með 4. maí 2017. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Eysteinn Már Sigurðsson, Morgane Priet-Mahéo, Halldór Heiðar Bjarnason og Lilian Pineda, dags. 3. maí 2017, Þórir Gunnarsson, dags. 4. maí 2017 og Karl Palsson, dags. 6. maí 2017.