Á fundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2016 var lögð fram umsókn Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf., mótt. 12. febrúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vegna húss nr. 24 á lóð nr. 18-24 við Tangabryggju. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum í húsinu úr 40-44 í allt að 63 íbúðir, samkvæmt uppdr. Björns Ólafs arkitekts, ódags. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs. Vakin er athygli umsækjanda á að umsóknin fellur undir gr. 7.5 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.