Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 2015 var lögð fram fyrirspurn a2f arkitekta ehf. dags. 6. febrúar 2015 varðandi færslu á byggingarreit, fella niður kvöð um bílgeymslu og koma fyrir bílastæði á suðausturhorni lóðar nr. 2 við Skildinganes, samkvæmt uppdr. a2f arkitekta ehf. dags 4. febrúar 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.