Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. desember 2014 var lögð fram fyrirspurn Aðalheiðar Atladóttur dags. 8. desember 2014 varðandi hækkun á nýtingarhlutfalli, aukaíbúð og kvöð um bifreiðageymslu á lóð nr. 2 við Skildinganes. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. desember 2014.