Lögð fram umsókn Grétars Sigfinns Sigurðssonar dags. 26. mars 2015 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags lóðarinnar nr. 2 við Skildinganes. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og niðurfelling á kvöð um bifreiðageymslu, samkvæmt uppdr. A2f arkitekta ehf. dags. 26. mars 2015.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Bauganesi 4, 6 og 8 og Skildinganesi 1, 3, 4, 6 og 8.