Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Þingholts dags. 5. september 2022 um stækkun lóðarinnar nr. 6 við Hellusund, samkvæmt tillögu Trípólí arkitekta dags. 5. september 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022.