Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að deiliskipulagi lóðarinnar nr. 3-11 við Stangarholt. Í skipulagstillögunni felst skipting lóðar, gera byggingarreit fyrir færanlega skólastofu vestan megin leikskólans o.fl., samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. júlí 2015. Einnig er lagt fram samþykki meðlóðarhafa að Stangarholti 3-11, mótt. 18. maí og 9. og 17. júlí 2015. Tillagan var auglýst frá 30. september til og með 11. nóvember 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Ragnhildur S. Birgisdóttir, dags. 11. nóvember 2015.