Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Hallgrímssonar dags. 19. mars 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Árbæjar - Seláss vegna lóðarinnar nr. 5 við Fjarðarás. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit vegna stækkunar svala og stigapalls á efri hæð hússins samkvæmt uppdr. Arkþings ehf. dags. 28. febrúar 2019. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. maí 2019 til og með 14. júní 2019. Engar athugasemdir bárust.