Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 9. október 2015 var lögð fram fyrirspurn Benjamíns G. Magnússonar, mótt. 25. september 2015, varðandi uppbyggingu á lóð nr. 37 við Njálsgötu sem felst í að byggja við og hækka húsið á lóðinni ásamt byggingu nýs húss á baklóð, samkvæmt uppdr. Arkitektastofu Benjamíns Magnússonar ehf., dags. 22. september 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 16. október 2015.