Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. janúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt tveggja hæða raðhús, mhl. 01, með kjallara og innbyggðum bílskúr á lóð nr. 24 við Lautarveg. Útreikningur á varmatapi dags. 3. desember 2014 fylgir erindi. Stærð: íbúð 279 ferm., 979,9 rúmm. Bílgeymsla 45,5 ferm. 157,4 rúmm. Samtals 324,5 ferm., 1137,3 rúmm. B rými 10 ferm., 32 rúmm. Samtals með B rými 334,5 ferm., 1169,3 rúmm. V rými 48 ferm., 142,5 rúmm. Gjald kr. 9.500