Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús ásamt einnar hæðar vinnustofu á lóð nr. 2 við Fossagötu. Erindi var grenndarkynnt frá 6. apríl 2018 til og með 7. maí 2018. Engar athugasemdir bárust.
Stærðir: Mhl.01: 157,6 ferm., 505,0 rúmm. Mhl.02: 48,9 ferm., 147,9 rúmm. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24.11.2017 við fyrirspurn SN170829 fylgir erindi. Jafnframt er erindi BN051376 fellt úr gildi. Gjald kr. 11.000