Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. mars 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja tveggja hæða einbýlishús ásamt einnar hæðar vinnustofu á lóð nr. 2 við Fossagötu. Stærðir: Mhl.01: 157,6 ferm., 505,0 rúmm. Mhl.02: 48,9 ferm., 147,9 rúmm. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24.11.2017 við fyrirspurn SN170829 fylgir erindi. Jafnframt er erindi BN051376 fellt úr gildi. Gjald kr. 11.000