Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem spurt er um hvort leyfi fengist til að koma fyrir svölum á suðurhlið á 2. hæð íbúðar í húsinu á lóð nr. 8 við Sjafnargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 20. febrúar 2015.