Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 17. febrúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja anddyri með þaksvölum og kvist á bakhlið einbýlishúss á lóð nr. 6 við Öldugötu. Erindi var grenndarkynnt frá 6. mars til og með 3. apríl 2015. Engar athugasemdir bárust.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 11. febrúar 2015. Stækkun: 36,2 ferm., 91 rúmm. Gjald kr. 9.823