Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 20. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja við eins og sýnt er á meðfylgjandi teikningum skrifstofuhús á lóð nr. 18 við Ránargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. mars. 2015.