Fyrirspurn
Á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 13. maí 2015 var lagt fram bréf Birgis Viðars Halldórssonar dags. 27. apríl 2015 vegna neikvæðrar afgreiðslu byggingarfulltrúa frá 3. mars 2015 um hvort leyfi fengist til að útbúa tvær íbúðir í einbýlishúsi á lóð nr. 8 við Beykihlíð. Erindinu var vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. maí 2015.