Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. desember 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. desember 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að byggja bílskúr í suðvesturhorni lóðar nr. 20 við Skeiðarvog. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. janúar 2016.