Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. desember 2017 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 3. hæð og ris, innrétta nýja íbúð í risi, byggja svalir á suðurgafli 1. 2. 3. hæðar, gera nýjan inngang og innrétta íbúðarherbergi í kjallara tvíbýlishúss á lóð nr. 4 við Mímisveg. Erindi var áður samþykkt 15. desember 2015 sem erindi BN049682 en var fellt úr gildi 1. desember sl. Stækkun: 100,8 ferm., 241,8 rúmm.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að Mímisveg 2, 2a, 6 og 8, Fjölnisvegi 15, Sjafnargötu 14, Barónsstíg 78 og 80 og Freyjugötu 42, 44 og 46.