Lögð fram fyrirspurn Local lögmanna f.h. dánarbús Elínbjargar Eggertsdóttur dags. 2. mars 2015 varðandi stækkun hússins á lóðinni nr. 18 við Skólavörðustíg. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 24. febrúar 2015.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað. Tillagan verður grenndarkynnt þegar hún berst.