Á fundi skipulagsfulltrúa 22. apríl 2016 var lögð fram umsókn Arkþings ehf., mótt. 14. apríl 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.181.0 vegna lóðarinnar nr. 18 við Skólavörðustíg. Í breytingunni felst að byggja við kjallara og 1. hæð hússins til suðurs jafnt við efri hæðir hússins, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf., dags. 14. apríl 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 20. maí 2016.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skólavörðustíg 16A, 20, Týsgötu 4C og Óðinsgata 1.