Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 24. mars 2015. Sótt er um leyfi til að breyta hluta af rými 0101 í safn/ skóla og veitingastað í flokki II fyrir 175 gesti í húsinu á lóð nr. 5 við Eyjarslóð. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 13. mars 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. mars 2015 og samþykki Faxaflóahafna dags. sama dag. Gjald kr. 9.823