Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. mars 2015 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að loka undirgöng sem tilheyra húsinu og bæta við íbúð 0103 í húsinu á lóð nr. 15 við Freyjugötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2015.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2015.