Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 10. apríl 2015 var lögð fram fyrirspurn Sigrúnar Sigfúsdóttur og Gunnars Böðvarssonar dags. 27. mars 2015 um að innrétta íbúð í bílskúr á lóð nr. 212 við Sogaveg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. apríl 2015.