Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 17. apríl 2015 var lögð fram fyrirspurn Ragnheiðar Harðardóttur dags. 7. apríl 2015 varðandi byggingu garðskúrs á baklóð hússins að Oddagötu 4, samkvæmt tillögu Studio Granda ehf. dags. í mars 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 7. maí 2015.