Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. nóvember 2020 var lögð fram fyrirspurn Björns Valdimarssonar dags. 29. september 2020 um fjölgun íbúða í húsinu á lóð nr. 15 við Bergþórugötu um eina sem felst í að skipta íbúð merkt 0201 í tvær íbúðir. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa. dags. 5. janúar 2021.