Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. maí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 5. maí 2015 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja stakstætt bakhús 35 ferm að grunnfleti með rishæð eignarhaldi tengd við íbúð á jarðhæð og verður notað sem íbúðargistingar á lóð nr. 15 við Bergþórugötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 13. maí 2015.