Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Helgu Thorberg, mótt. 4. apríl 2017, um að gera íbúð í risi hússins á lóð nr. 8 við bárugötu og setja tvo kvisti, annan í miðri austurhliðinni og hinn í miðri vesturhliðinni, samkvæmt uppdr. A2F arkitekta ehf., dags. 24. mars 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2017.