Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Árna Gunnars Ingþórssonar mótt. 7. ágúst 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.3 og 1,4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 47 við Efstasund. Í breytingunni felst að stækkunarheimildum er breytt þannig að byggingarreitur til austurs er minnkaður um 3 metra og settur er inn nýr byggingarreitur til suðurs 3 metra frá núverandi húsi. Ef viðbygging verður ein hæð er heimilt að nýta þak hennar fyrir verönd/sólskála, samkvæmt uppdr. Vektor, hönnun og ráðgjöf ehf. ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 20. ágúst til og með 17. september 2015. Engar athugasemdir bárust. Að lokinni kynningu barst athugasemd dags. 23. september 2015 frá Hauki Haukssyni f.h. eigenda að Efstasundi 49.