Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi til að stækka stigahús, byggja sólskála með svölum á þaki við suðurgafl, hækka forstofubyggingu á norðurgafli og breyta innra skipulagi í tvíbýlishús á lóð nr. 27 við Laufásveg. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 5. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 20. mars 2015. Stækkun: 29,8 ferm., 85 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Laufásvegi 24, 25, 26 og 31 og Þingholtsstræti 35 og 37.