Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. september 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. september 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja 2ja hæða nýbyggingu auk kjallara úr forsteyptum einingum fyrir líkamsræktarstöð á lóð nr. 15 við Lambhagaveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 21. september 2016.
Stærðir: A-rými 2.785,3 ferm., 11.380,6 rúmm. B-rými 329,4 ferm., 958,6 rúmm. C-rými 79,9 ferm. Gjald kr. 10.100