Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. maí 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 19. maí 2015 þar sem spurt er hvort byggja megi kvisti á báða þakfleti, þrjá hvorum megin, á fjölbýlishús á lóð nr. 35 við Hagamel. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. júní 2015.