Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. september 2015 var lögð fram fyrirspurn Dejan Rackov mótt. 19. ágúst 2015 um að byggja skyggni yfir inngang kjallaraíbúðar hússins á lóð nr. 35 við Hagamel. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. september 2015.