Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015. Sótt er um leyfi til að byggja steinsteypta bílgeymslu og útigeymslu í suðausturhorni lóðar, sjá fsp. BN049420 frá 26. maí 2015, gera nýjan inngang á suðurhlið jarðhæðar, byggja nýja stoðveggi, koma fyrir setlaug, endurskipuleggja lóð og útbúa tvö ný bílastæði við einbýlishús á lóð nr. 21 við Laugarásveg. Bílskúr 29,2 ferm., 87,4 rúmm. Útigeymsla: 16,2 ferm.þ., 48,8 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Laugarásvegi 15, 17a, 19, 23, 25 og Kleifarvegi 12 og 14.