Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. mars 2017 þar sem sótt er um leyfi til að setja svalir á íbúðir 0101 og 0201 á austurhlið og á íbúð 0301 sem er þakhæð á norðurhlið, og til að breyta notkunarflokki í flokk 4 og gistingarflokk II í húsi á lóð nr. 17 við Eiríksgötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 31. mars 2017.
Jafnframt er erindi BN049684 sem er nýlega samþykkt dregið til baka. Gjald kr. 11.000