Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 28. september 2021 þar sem sótt er um leyfi til þess að byggja fjögurra deilda leikskóla fyrir 70 börn, mhl.03, á lóð nr. 35 við Eggertsgötu. Stærðir mhl.03: 630.0 ferm., 2.047.5 rúmm. Erindi fylgir skýrsla um brunahönnun unnin af Örugg verkfræðistofu, dags. 9. september 2021 og lóðablað 1.636.1 dags. 7. júní 2021. Gjald kr. 12.100