Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. júní 2015 var lögð fram fyrirspurn Elíasar Theódórssonar dags. 10. júní 2015 varðandi breytingu á notkun annarrar hæðar hússins á lóð nr. 3B við Skeifuna úr skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. júní 2015.