Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 24. febrúar 2017 var lögð fram umsókn Bergs Þorsteinssonar Briem, mótt. 30. janúar 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi reits 1.151.5 vegna lóðarinnar nr. 10 við Lindargötu samkvæmt uppdr. Bergs Þorsteinssonar Briem, dags. 29. nóvember 2016. Í breytingunni felst að Lindargata 10 verði gert upp og fært sem næst í upprunalegt horf, ný viðbygging verði byggð milli Lindargötu 10 og Lindargötu 12 og að nýtt lítið hús verði byggt upp að brunagafli Smiðjustígs 12. Einnig er lögð fram greinargerð Bergs Þorsteinssonar Briem, dags. 30. janúar 2017 og bréf Minjastofnunar Íslands, dags. 1. júlí 2015 og 12. júlí 2016. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.