Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 10. júlí 2015 var lagt fram erindi sem framsent var af fundi byggingarfulltrúa 30. júní 2015 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til mála auglýsingar á hlið bílskúrs sem snýr að Miklubraut og er á lóð nr. 4-8 við Stóragerði. Erindinu var vísað til umsagnar skrifstofu sviðsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skrifstofu skipulagsfulltrúa dags. 14. ágúst 2015.