Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júlí 2015. Sótt er um leyfi til að byggja nýjan steinsteyptan bílskúr að vestanverðu, koma fyrir geymslukjallara undir verönd 0102 og steypa lágan stoðvegg á lóðamörkum nr. 6 og 8 við Brekkugerði á lóð nr. 4 við Brekkugerði. Bílaskúr stærð: 33,4 ferm., 84,9 rúmm. Geymslukjallari: 36,3 ferm., 98,0 rúmm. Gjald kr. 9.823