Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 28. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja kvist á austurhlið og breyta innra skipulagi efri hæðar einbýlishúss á lóð nr. 28 við Tjarnargötu. Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar Íslands dags, 9. júlí 2015, samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða dags. 8. júlí 2015, samþykki lóðarhafa Tjarnargötu 26 vegna breytinga á lóðamörkum og kaupsamningur dags. 22. maí 2015. Stækkun: 1,76 ferm., 5,76 rúmm. Gjald kr. 9.823