Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. apríl 2017 var lögð fram fyrirspurn Úðafoss sf., dags. 21. mars 2017, um að breyta efri hæðum hússins á lóð nr. 13 við Vitastíg úr skrifstofum í íbúðir, samkvæmt uppdr. Hornsteina arkitekta ehf., dags. 17. mars 2017. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 28. apríl 2017.