Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 28. ágúst 2015 var lögð fram fyrirspurn Ásgeirs Arnar Hlöðverssonar, dags. 14. ágúst 2015, um að fjölga íbúðum á lóðunum nr. 84-94 og 100-110 við Úlfarsbraut úr 12 í 24, samkvæmt uppdr. Kristins Ragnarssonar arkitekts, dags. 13. ágúst 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2015.