Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. september 2015 var lögð fram fyrirspurn Óskars Þórs Óskarssonar, mótt. 20. ágúst 2015, varðandi færslu á bílastæði lóðarinnar nr. 74 við Haukdælabraut ásamt hækkun á gólfkóta um 0,6. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa 18. september 2015.