Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 4. september 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. september 2015 þar sem sótt er um samþykki á teikningum vegna umsóknar um rekstrarleyfi fyrir veitingasölu í flokk III, tegund g, fyrir 360 gesti með opnunartíma til kl. 1:00 virka daga og til kl. 3:00 um helgar í félagsheimili Knattspyrnufélagsins Vals á lóð nr. 2-6 við Hlíðarenda. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 11. september 2015..
Gjald kr. 9.823