Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2016 var lagt fram bréf Reynis Tómasar Geirssonar, dags. 31. janúar 2016, varðandi viðbótarbílastæði við húsið á lóð nr. 91 við Safamýri. Einnig er lagt fram bréf Reynis Tómasar Geirssonar, dags. 26. janúar 2016. Erindinu var vísað til skrifstofu sviðsstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu sviðsstjóra, dags. 3. mars 2016.