Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta gististað í flokki II, teg. gistiskáli fyrir 40 gesti í íbúð á 2. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 74A við Laugarnesveg. Gjald kr. 10.100