Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 18. mars 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta veitingahús í flokki II, teg. E, kaffihús fyrir 45 gesti, koma fyrir nýjum inngang á norðurhlið og gluggum á suðurhlið íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 74A við Laugarnesveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 31. mars 2016.
Gjald kr. 10.100